Við leggjum metnað í okkar verk.
Sérverk ehf var stofnað árið 1991 og er alhliða byggingafyrirtæki sem sérhæfir sig í uppsteypu og fullnaðarfrágangi mannvirkja.
Meðal verkefna sem unnin hafa verið eru: uppsteypa á skólum, fjölbýlishúsum, rað- og parhúsum ásamt fleiru.
Byggingarfélagið hefur alla tíð verið staðsett í Kópavogi, fyrst í Akralind og síðan í Askalind en er nú komið í nýtt húsnæði sem staðsett er í Tónahvarfi 9 þar sem megin starfsemin fer fram.
Sérverk hefur ávallt haft það að leiðarljósi að skila góðum verkum enda hvergi til sparað að gera hlutina sem best úr garði og hafa mörg af stærstu fyrirtækjum landsins skipt við Sérverk.
Sérverk hefur byggt um 400 íbúðir fyrir almennan markað, einnig þúsundir fermetra af atvinnuhúsnæði.
Innréttingaverkstæði Sérverks er búið fullkomnustu tækjum sem völ er á til innréttingasmíða.
Hjá fyrirtækinu starfa um 20 manns að jafnaði, allt miklir fagmenn og með mikla reynslu, undirverktakar starfa einnig hjá Sérverk.
Fyrirtækið starfar á öllum sviðum er snúa að byggingastarfsemi.
Sérverk er þekkt fyrir vönduð og góð vinnubrögð, traust og virðing er borin fyrir öllum verkum og efndir á umsömdum afhendingartíma í heiðri hafðar.